Hvaða bjóráskrift má bjóða þér?

Bjóráskriftum Bjórlands er skipt upp í þrjá pakka: Almennur borgari, Góðborgari og Gleðipinni. Aðalmunurinn á milli þeirra er magn bjórs en ekki gæði þess bjórs sem í þeim er. Þess utan fá áskrifendur að Góðborgaranum og Gleðipinnanum 10% afslátt af vörum Bjórlands (að stöku sérbjórum, áskriftum og afsláttarvörum undanskyldum).

Almennur Borgari

Hvað færðu?
Að vera almennur borgari þýðir að þú færð lítið safn af bjór/öli/miði einu sinni í mánuði á frábærum kjörum. Magn bjórs er mismunandi frá mánuði til mánaðar í ljósi verðmunar en gulltryggt er að kjörin eru betri en sé ölið keypt beint í vefversluninni. Í þessum pakka er lögð áhersla á að áskrifandi fái ávallt það nýjasta og ferskasta sem Bjórland býður upp á, þar með taldir þeir sérbjórar og nýjar tegundir sem koma fram á hverjum gefnum tíma.

Nánar tiltekið:

  • Mánaðarlegur kassi með úrvali af bjór/öli/miði. Valið er vandlega í hvern kassa. Fjöldi verður breytilegur milli pakka en tryggt er að upplagið verði í takt við það sem greitt er fyrir og gott betur!
  • Trygging fyrir því að allur bjór/öl/mjöður sem gefinn er út í takmörkuðu upplagi, eða er ófáanlegur annarstaðar, rati í kassann þegar svo ber undir.

Góðborgari

Hvað færðu?

Að vera Góðborgari þýðir að þú færð afhent stærra safn af úrvals bjór/öli/miði einu sinni í mánuði á frábærum kjörum. Magn bjórs er mismunandi frá mánuði til mánaðar í ljósi verðmunar en gulltryggt er að kjörin eru betri en sé ölið keypt beint í vefversluninni. Í þessum pakka áhersla lögð á að áskrifandi fái ávallt það nýjasta og ferskasta sem Bjórland býður upp á, þar með taldir þeir sérbjórar og nýjar tegundir sem koma fram á hverjum gefnum tíma. Auk þess verður sérvalið úrval af öðru góðmeti sem finnst á lager Bjórlands í pakkanum.

Hvað færðu umfram almennan borgara?

  • Þú færð meiri bjór.
  • Þú færð fastan 10% afslátt af vörum Bjórlands (að stöku sérbjórum, áskriftum og afsláttarvörum undanskyldum).

Nánar tiltekið:

  • Mánaðarlegur kassi með úrvali af bjór/öli/miði. Valið er vandlega í hvern kassa. Fjöldi verður breytilegur milli pakka (yfirleitt 14-20 stk) en tryggt er að upplagið verði í takt við það sem greitt er fyrir og gott betur!
  • Trygging fyrir því að allur bjór/öl/mjöður sem gefinn er út í takmörkuðu upplagi, eða er ófáanlegur annarstaðar, rati í kassann þegar svo ber undir.
  • Fastur 10% afsláttur af vörum Bjórlands (að stöku sérbjórum, áskriftum og afsláttarvörum undanskyldum).

Gleðipinninn

Hvað færðu?

Að vera viðurkenndur Gleðipinni Bjórlands þýðir að þú færð afhent enn stærra safn af úrvals bjór/öli/miði einu sinni í mánuði á frábærum kjörum. Magn bjórs er mismunandi frá mánuði til mánaðar í ljósi verðmunar en gulltryggt er að kjörin eru betri en sé ölið keypt beint í vefversluninni. Í þessum pakka áhersla lögð á að áskrifandi fái ávallt það nýjasta og ferskasta sem Bjórland býður upp á, þar með taldir þeir sérbjórar og nýjar tegundir sem koma fram á hverjum gefnum tíma. Auk þess verður sérvalið úrval af IPA bjór úr lager Bjórlands sett með. 

Hvað færðu umfram Góðborgarann?

  • Þú færð veglega IPA viðbót í Stóra Pakkann.

Nánar tiltekið:

  • Mánaðarlegur kassi með úrvali af bjór/öli/miði. Valið er vandlega í hvern kassa. Fjöldi verður breytilegur milli pakka (yfirleitt 14-20 stk) en tryggt er að upplagið verði í takt við það sem greitt er fyrir og gott betur!
  • Trygging fyrir því að allur bjór/öl/mjöður sem gefinn er út í takmörkuðu upplagi, eða er ófáanlegur annarstaðar, rati í kassann þegar svo ber undir.
  • Fastur 10% afsláttur af vörum Bjórlands (að stöku sérbjórum, áskriftum og afsláttarvörum undanskyldum).
  • Vegleg viðbót af IPA af lager Bjórlands.

Nánari skilmálar:

  • Verðgildi innihaldsins verður alltaf rúmlega það sem greitt er fyrir.
  • Kröfur eru gefnar út fyrir fyrsta hvers mánaðar. Pakkarnir afgreiddir þann tíunda til þeirra sem greitt hafa sínar kröfur.
  • Engin skuldbinding. Uppsagnir taka gildi um næstu mánaðamót ef uppsögn berst eigi síðar en 25. dag mánaðarins.
  • Bæði hægt að fá sent heim eða sækja í Bjórland. Sendingargjald leggst ofan á áskriftargjald.
  • Ósóttir áskriftarpakkar eru geymdir í tvo mánuði, eftir það áskilur starfsfólk Bjórlands sér rétt til þess að drekka innihaldið. 
  • 20 ára aldurstakmark.